Á 5. stigi Knapamerkjanna á knapinn að hafa vald og þekkingu á eftirfarandi þáttum
Bóklegt
Þekkja grunn í sögu reiðmennsku og þróun fram á daginn í dag
Kunna skil á helstu þáttum þjálfunarlífeðlisfræði og þjálfunar hesta
Skilja hvað liggur til grundvallar æfingunum opnum sniðgangi og að láta hestinn ganga aftur á bak
Þekkja mjög vel gangtegundir íslenska hestsins og hvað liggur til grundvallar þjálfunar þeirra
Þekkja og skilja virkni íslenskra stangaméla
Þekkja helstu stofnanir og félagskerfi íslenskrar hestamennsku
Verklegt
Hafa mjög gott vald á öllum ásetum og kunna að beita þeim rétt við þjálfun hestsins
Geta notað sér reiðvöllinn og fjölbreyttar reiðleiðir markvisst við þjálfun hestsins
Hafa vald á gangtegundaþjálfun og geta riðið allar gangtegundir nema skeið
Hafa gott vald á hraðastjórnun og gangskiptingum
Geta látið hestinn stækka og minnka rammann, á feti og brokki
Hafa vald á æfingunum opnum sniðgangi (á feti) og að láta hestinn ganga aftur á bak
Geta framkvæmt réttar gangskiptingar í jafnvægi
Knapi og hestur í andlegu og líkamlegu jafnvægi
VERKLEGT PRÓF (í gildi til 31.12.2020)
VERKLEGT PRÓF (tekur gildi 01.01.2021)
ÆFINGASPURNINGAR FYRIR BÓKLEGT PRÓF
Hér fyrir neðan sýnishorn af verklegu prófi á 5. stigi.
Ath. prófið getur verið lítillega breytt frá þeirri útgáfu sem er sýnd hér að neðan